Wednesday, December 5, 2007

Uppgjör við haustönn

Jæja. Þá fer þessarri blessuðu önn að ljúka og mig langaði svona að taka aðeins saman hvernig upplifun mín af þessum kvikmyndafræði-kúrs hefur verið.

Ég verð eiginlega bara að byrja á að viðurkenna að ég hef aldrei nokkurtíman verið jafn spenntur fyrir tímum í skólanum. Enda kannski ekki á öðru von þar sem tilhugsunin um að læra um eitthvað sem maður hafði virkilegan áhuga, í stað tegurreiknings og þróunarsprengingarinnar í enda Kambríum, einstaklega framandi.

Í fyrsta tímanum, þar sem Siggi fór með okkur í gegnum námskeiðið, sá ég strax að þetta yrði geðveikt. Hugmyndin um að halda úti blogg síðu og skrifa dóma um bíómyndir fannst mér alveg klikkuð (og finnst enn.. þetta er lang skemmtilegasta heimavinna sem ég hef haft!). Einning hlakkaði ég helvíti mikið til að fá að gera stuttmyndir með almennilegri myndavél. Þannig er nefnilega mál með vexti að þegar ég og Ingólfur vorum í 9. og 10. bekk stofnuðum við stuttmyndafélag, ásamt félaga okkar Gunnari Snæ Júlíussyni, sem hét Mussamyndir. Við bjuggum til, að mig minnir, þrjár alvöru stuttmyndir og alveg helling af svona klippum og skotum. Við byrjuðum meira að segja á að gera eina mynd sem alveg silent. Önnur myndin var síðan einhverskonar grínmynd um illan klóna aðalpersónunnar. Eftir að hafa gert þessar tvær myndir fengum við allir hrikalega mikinn áhuga á zombie myndum og fórum að gera zombie myndir og klippur. Þetta er allt til einhverstaðar held ég.. þarf að finna þetta. En allavega. Það var semsagt ein af ástæðunum sem ég hafði svona mikinn áhuga á þessu námskeiði að ég fengi að gera stuttmynd aftur, enda komið langt síðan ég dundaði mér við það. Það var þess vegna alveg einstaklega gaman að fá að gera stuttmynd um miðbik annarinnar og þrátt fyrir ákveðnar hömlur á því hvernig mátti vinna stuttmyndina var þetta bara mjög svo skemmtileg upplifum. Ég hlakka mikið til að fá að gera aðra stuttmynd eftir áramót og þá vinna út frá almennilegu handriti, klippa í tölvu og allt það.

Fyrirlestrarnir voru líka mjög fróðlegir og náðu sumir þeirra að vekja áhuga minn á leikstjórunum. Til dæmis dauðlangar mig núna að sjá fleiri Ingmar Bergmann myndir og fyrirlesturinn um Kurusawa ýtti ennþá meira undir það hvað mig langar að sjá myndirnar hans (læt verða af því í jólafríinu). Fyrirlesturinn sem ég, Ari, Ingólfur og Marinó gerðum vakti líka eftirtek mína á þessum merka leikstjóra, Billy Wilder. Því þó ég kannaðist við margar að myndunum hans hafði ég ekki séð eina einustu og aldrei heyrt þetta nafn áður. Fyrirlesturinn var því kærkomin kynning á manninnum.

Mig langar líka aðeins að tala sérstaklega um þetta blogg, þó svo að ég hafi komið inn á það áðan líka. Eins og ég sagði finnst mér þetta alveg frábær hugmynd að heimavinnu. Ég byrjaði fullur metnaðar og gerði einhverjar 15-16 færslur í september. Í október kom ákveðin ládeyða í þetta blogg sem hefur örugglega eitthvað að gera með Airwaves vikuna og allt það sem ég þurfti að stússast í kringum tónlist þann mánuðinn. Þegar nóvember byrjaði og ég sá að ég hafði bara gert eina skitna færslu mánuðinn á undan fékk ég samviskubit (sem ég fæ venjulega ekki yfir að hafa ekki unnið heima) og ákvað að drulla mér til að skrifa fleiri færslur. Ég ætla að reyna að halda þessu tempó-i gangandi í jólafríinu og eftir áramót því þegar ég kem mér í gírinn finnst mér þetta alveg óbærilega gaman.

Næsta önn
Ég hlakka mikið til að sjá hvernig næsta önn í kvikmyndafræðinni verður. Margt að hlakka til. Ég ætla að reyna að fara að mæta í þessa sýningartíma sem ég hef verið ansi latur við að mæta í hingað til og blogga meira. Ég á eftir að tala um alveg fullt af myndunum af Topp 10 listanum mínum og svo auðvitað allar myndirnar sem ég sé í jólafríinu.

En annars bara takk kærlega fyrir frábært námskeið hingað til.

5 comments:

Bóbó said...

fyrsta mál á dagskrá hjá þér ætti klárlega að vera að kynnast vinum þínum aðeins betur því það var klárlega Marri en ekki Bjössi sem vann þennan fyrirlestur með okkur. Þú manst það sjálfsagt ekki því þú mætir aldrei í tíma... einsog Bjössi.

Unknown said...

það er alveg satt .. biðst hérmeð Marinó innilegrar afsökunnar. þetta var skrifað í algjöru hugsunarleysi. ég get því miður ekki borið fyrir mig einhverjar góðar afsakanir eins og t.d. ölvun eða eiturlyfjaneyslu en ég vona að með tíð og tíma að Marinó geti séð það í hjarta sér að fyrirgefa mér.

Siggi Palli said...
This comment has been removed by the author.
Siggi Palli said...

Gaman að sjá að námskeiðið leggst vel í þig. En að alvaranum...
Umsögn um blogg
22 færslur.
Allt hágæðafærslur og ansi margar sem gætu talist sem fleiri en ein færsla.
9,5

Marinó Páll said...

Þú ert nú meiri drjólsugan Árni